Þrettándagleði innan dyra

Hestamannafélagið Þytur í Vestur-Húnavatnssýslu hélt sína árlegu þrettándagleði á mánudaginn í síðustu viku. Að þessu sinni var hún þó haldin innan dyra vegna veðurs.

„Vegna veðurs urðum við að halda hana inni, gengum bara hringi í Reiðhöllinni. Síðan var borið fram kakó, gos og kökur í boði Æskulýðsstarfsins hjá Þyt og börnin fengu að fara á hestbak. Þetta var lítil en skemmtileg skemmtun að þessu sinni,“ sagði Kolbrún Indriðadóttir, formaður félagsins, í samtali við Feykir.

Fleiri myndir frá þrettándagleði Þyts er að finna á heimasíðu félagsins.

Fleiri fréttir