Þrír leikir framundan hjá Tindastóli

Þeir verða annasamir næstu dagarnir hjá Tindastóli í körfunni en þeir leika þrjá leiki á næstu fimm dögum. Í kvöld kemur Valur í heimsókn á Krókinn og eigast liðin við í Lengjubikarnum og hefst leikurinn kl. 19:15. Á föstudaginn kemur lið Keflavíkur norður og þriðji leikurinn verður syðra á móti Val.

Þann 24. september hefjast átta liða úrslit en sjálfur úrslitaleikurinn verður háður 29. sept. Fyrsti leikur Tindastóls í 1.deildinni fer svo fram 11.október á móti Augnabliki í Síkinu.

Fleiri fréttir