Þróa smyrsl úr minkafitu
Urðaköttur ehf., staðsett á Syðra-Skörðugili í Skagafirði, er fyrirtæki sem á og rekur minkabú. Um tólf tonn af minkafitu falla til við vinnslu minkaskinna árlega og fram til þessa hefur minkafitunni verið fargað með tilheyrandi kostnaði og umhverfisálagi.
Á Syðra-Skörðugili hefur einnig verið stunduð hrossarækt, tamningar og þjálfun hesta um áratuga skeið. Ábúendur á Syðra-Skörðugili ákváðu að samtvinna þekkingu sína í þessum tveimur búgreinum og þróa smyrsl úr minkafitu til meðhöndlunar á útbrotum og smásárum á hrossum, t.d. múkki, og einnig leðurfeiti til að setja á reiðtygi.
Nú hefur verið útbúin markaðskönnun til þess að átta sig betur á neytendavenjum hestamanna og þörfum. Hefur hún m.a. birst á heimasíðum hestamannafélaga þar sem hestamenn eru beðnir um að gefa sér nokkrar mínútur til að svara könnuninni á netinu.