Þyrla flaug með nýja göngubrú yfir Fossá

Ný brú sem þjóna á göngufólki yfir Fossá í Austurdal í Skagafirði var í síðustu viku flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar frá Keldudalsbrúnum og á sinn stað sem eru um 12 km fyrir innan Hildarsel. Flutningurinn gekk vel að sögn Gísla Frostasonar eins forgöngumanna um smíði brúarinnar.

Gísli segir að áhugamannahópur um bættar samgöngur um Austurdalinn standi að verkinu en þeir hafi verið um níu talsins sem stóðu að flutningnum fyrir utan þyrluáhöfn. Um helgina verður svo brúin fest niður og þá tilbúin til notkunar.

Meðfylgjandi myndir tók Atli Gunnar Arnórsson.

.

Fleiri fréttir