Tillaga um frestun aðgerða

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar var tekin fyrir tillaga frá Sigurjóni Þórðarsyni, fulltrúa frjálslyndra, um að fresta öllum kostnaðarsömum innheimtuaðgerðum. Tillagan er sett fram í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur boðað stórtækar aðgerðir til lausnar á skuldavanda heimilanna. Var samþykkt með níu atkvæðum að vísa tillögu Sigurjóns til byggðaráðs til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.

Tillaga Sigurjóns hljóðaði orðrétt svona:

„Ríkisstjórn Íslands hefur boðað stórtækar aðgerðir til lausnar á skuldavanda heimilanna. Það er ljóst að innan skamms koma til framkvæmda fjölmargar aðgerðir sem fela m.a. í sér; afnám verðtryggingar og niðurfærslu á verðtryggðum skuldum heimilanna. Sömuleiðis liggur fyrir á sumarþingi tillaga um flýtimeðferð dómsmála sem tengjast skuldavanda heimilanna og varða ágreining um lögmæti þess að binda fjárskuldbindingar við gengi erlendra gjaldmiðla eða vísitölu. Á meðan framangreindar aðgerðir til hjálpar illa stöddum fjölskyldum eru handan við hornið er það eina rétta í stöðunni að Sveitarfélagið Skagafjarðar fresti innheimtuaðgerðum.“

Fleiri fréttir