Tilraunir með repjurækt á Vatnsnesi

Ósar á austanverðu Vatnsnesu er meðal níu staða á landinu þar sem farið var af stað sem farið var af stað með tilraunir til ræktunar á repju og nepju haustið 2008. Knútur Arnar Óskarsson og Ólafi Eggertssyni á Þorvaldseyri veittu ráðgjöf um þessa ræktun í tilraunaverkefni sem Siglingastofnun stóð fyrir. 
Repjan gefur af sér svört fræ sem pressuð eru í þar til gerðum pressubúnaði og til verður jurtaolía og hrat. Hratið er próteinríkur fóðurbætir fyrir húsdýr og fiskeldi. Repjuolíu má nota til margra hluta, s.s. til framleiðslu á umhverfisvænu og endurnýjanlegu eldsneyti og til matargerðar.
Í skýrslu Jóns Bernódussonar, Umhverfisvænir orkugjafar: Ræktun á repju og nepju til framleiðslu á lífrænni dísilolíu fyrir íslenska fiskiskipaflotann, er fjallað um þetta tilraunaverkefni og þar er að finna góðar upplýsingar fyrir áhugasama. Skýrsluna má nálgast á sigling.is, eða með því að smella hér.
Frá þessu greinir á vef Siglingastofnunar og Norðanátt.is.

Fleiri fréttir