Tiltölulega friðsæl áramót

Að sögn Lögreglunnar á Sauðárkróki voru áramótin tiltölulega friðsæl í þeirra umdæmi þó með nokkrum undantekningum sem fylgir skemmtanahaldi s.s. eins og ölvun, skemmdaverk og minni háttar líkamsmeiðingar.

Einnig var eitthvað um hávaðaútköll þar sem húsráðendur höfðu hærra en nágrannar voru tilbúnir að sætta sig við. Ölvunarakstur hefur ekki verið skráður síðan á aðfangadag en þá var einn tekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna eftir að hafa lent í umferðaróhappi innan bæjar á Sauðárkróki.

Í gær var haldinn Nýársfagnaður á Mælifelli fyrir 16 ára og eldri þar sem ungu fólki í Skagafirði var stefnt saman og segir lögreglumaður sem Feykir talaði við að aðstandendur þess eigi heiður skilið fyrir góða framkvæmd og gestir hafi verið til mikillar fyrirmyndar.

Fleiri fréttir