Tindastóll áfram í bikarnum
Lið Tindastóls komst áfram af öryggi í Powerade-bikarnum í gær eftir sigur á Álftanesi, 51-90, og hafa því tryggt sér þátttöku í 16 liði úrslitum.
Í frétt á Tindastóll.is segir að mikið flæði hafi verið í skiptingum í leiknum og til að mynda hafi þeir Loftur Páll, Pálmi Geir, Rúnar Sveins, Friðrik Þór og Pétur Rúnar fengið að láta til sín taka og hafi staðið sig með glæsibrag.
Þá er sagt frá því að sprækastur í liði heimamanna á Álftanesi hafi verið Króksarinn Davíð Arnar Ragnarsson, sonur Freyju og Ragga Kára Valla.