Tindastóll fær heimaleik gegn KR í bikarnum
Dregið var í fjögurra liða úrslit Poweradebikars karla og kvenna fyrr í dag og fékk Bárður Eyþórsson þjálfari Tindastóls ósk sína uppfyllta þegar kom í ljós að liðið fær heimaleik. Mótherjarnir verða hinir röndóttu KR-ingar sem hafa styrkt liðið nokkur frá því þeir komu síðast á Krókinn.
Í hinum leik karlaliðanna mætast Keflavík og KFÍ og hjá konunum Njarðvík og Haukar annarsvegar og Snæfell og Stjarnan hinsvegar.
Sigurvegarar þessara leikja mætast í úrslitunum í Laugardalshöllinni. Eftirfarandi viðureignir verða leiknar 4.-6. febrúar.