Tindastóll Grindavík í Lengjubikar

Nú fer körfuboltavertíðin að fara af stað og fyrsti alvöru leikur Tindastóls þessa tímabils verður næsta föstudagskvöld er lið Grindavíkur kemur í heimsókn í Síkið. Leikurinn er liður í Lengjubikarnum og hefst hann kl. 19:15. Tindastóll hefur leikið nokkra æfingaleiki undanfarið og gengið þokkalega og eru strákarnir til alls líklegir í vetur.

Nú er vert að hvetja alla til að mæta í Síkið og hvetja sína menn til sigurs.

Einn leikur hefur farið fram í keppninni þegar Njarðvík sigraði Þór Þ. Á útivelli, 93:78. Aðrir leikir sem fram fara á föstudag:

  • Breiðablik - KR
  • Fjölnir - Haukar
  • Hamar - Skallagrímur
  • ÍR - Snæfell

Hægt verður að kaupa árskort á leiknum sem kostar litlar átjánþúsund krónur og gilda á alla leiki í 1.deild karla, alla leiki í 1.deild kvenna sem og á leikina í lengjubikarnum.

Fleiri fréttir