Tindastóll mætir Fjölni í Powerade-bikarnum
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
05.12.2013
kl. 13.44
Dregið var í átta liða úrslit í Powerade-bikarkeppni karla í körfunni í gær. Ekki fékk lið Tindastóls heimaleik en strákarnir drógust á móti liði Fjölnis sem rétt eins og Stólarnir leika í 1. deild. Tindastóll á því góða möguleika á að skila sér í fjögurra liða úrslit.
Mörg sterk lið hafa hellst úr lestinni í bikarkeppninni en sem dæmi má nefna að KR, Snæfell, Keflavík og bikarmeistarar Stjörnunnar eru úr leik. Í átta liða úrslitum mætast síðan úrvalsdeildarlið Grindvíkinga og Njarðvíkinga og Þór Þorlákshöfn og Haukar og loks mætir ÍR b-liði Keflavíkur.
Ekki er búið að ákveða leikdaga en þó er klárt að leikið verður 18.-20. janúar.