Tindastóll með seiglusigur í framlengingu í Garðabænum

Tindastólsmenn gerðu sér lítið fyrir og sigruðu lið Stjörnunnar í Garðabænum í kvöld en Stjarnan er í öðru sæti Iceland Express-deildarinnar. Stjarnan náði strax yfirhöndinni í leiknum eftir að Rikki gerði fyrstu stigin í blábyrjun en síðan komust Stólarnir ekki yfir fyrr en í byrjun framlengingar, voru 5 stigum undir þegar um hálf mínúta var til leiksloka en Miller gerði 5 síðustu stigin og jafnaði leikinn með 3ja stiga skoti og því var framlengt. Stólarnir reyndust sterkari í framlengingunni og þá gerði Miller síðustu 6 stig Tindastóls og tryggði sigur af vítalínunni.

Sem fyrr segir þá gerði Rikki fyrstu stigin í leiknum en Shouse kom Stjörnunni yfir strax í kjölfarið og síðan komst Stjarnan í 8-2 en Allen kom sterkur inn fyrir Stólana sem hengu í heimamönnum út fyrsta leikhluta. Staðan 25-19 að honum loknum en Fannar Helgason kom Stjörnunni í 28-19 með þristi í byrjun annars leikhluta en Þröstur Leó svaraði í sömu mynt. Munurinn á liðunum var yfirleitt þetta 6-10 stig í öðrum leikhluta en Miller gerði síðasta stigið í fyrri hálfleik af vítalínunni og staðan 40-35.

Þriðji leikhluti var á svipuðum nótum. Keith Cothran tróð og breytti stöðunni í 50-42 en Rikki svaraði með 3ja stiga körfu en Stjarnan var sterkari aðilinn þegar leið á leikhlutann og Marvin Valdimarsson kom þeim í 60-49 en Svabbi og Loftur Páll löguðu stöðuna. Renato Lindmets gerði síðustu körfu leikhlutans og staðan 65-56. Stólarnir náðu sér vel á strik í fjórða leikhluta og náðu heimamenn aðeins að gera 11 stig í honum. Þegar tæpar fjórar mínútur voru liðnar jafnaði Curtis Allen leikinn 67-67 og tóku heimamenn þá leikhlé og náðu aftur undirtökunum í framhaldinu. Marvin kom þeim í 74-69 með 3ja stiga körfu en Miller minnkaði muninn í 74-71, Marvin setti niður tvö víti þegar mínúta var eftir en braut síðan á Miller sem minnkaði aftur muninn, 76-73, þegar hálf mínúta var eftir. Keith Cothran klikkaði á skoti, Allen náði frákastinu og Miller jafnaði með 3ja stiga skoti. Stjarnan tók leikhlé og þegar leikurinn hófst á ný klikkaði 3ja stiga skot Cothrans, lokatölur 76-76 og leikurinn framlengdur.

Helgi Rafn gerði einu körfu sína í leiknum í upphafi framlengingar og Allen bætti við körfu en Stjarnan minnkaði muninn og leikurinn æsispennandi. Þau undur og stórmerki gerðust að Shouse misnotaði víti og síðan aftur en jafnaði þó leikinn 82-82. Miller kom Stólunum yfir 82-84 en Marvin skilaði einum þristi rétta leið. Shouse braut síðan á Miller sem setti niður bæði vítin sín og kom Stólunum yfir 85-86 þegar hálf mínúta var eftir af framlengingu. Stjarnan tók leikhlé en í framhaldinu voru dæmd skref á Sigurjón Lárusson og Stólarnir fengu boltann. Þegar skammt var eftir braut Shouse aftur á Miller sem kláraði leikinn með tveimur vítum. Lokatölur 85-88 og sjötti sigur Tindastóls í síðustu 7 leikjum staðreynd.

Miller var góður í kvöld og ískaldur og sjóðheitur á vítalínunni, setti niður 9 af 10 vítum sínum og gerði alls 30 stig í leiknum. Þá var Allen magnaður með 19 fráköst og 17 stig. Svabbi skilaði niður 13 stigum og Þröstur 11. Hjá Stjörnunni var Marvin með 22 stig en Shouse aðeins 15 að þessu sinni og gerði aðeins 5 3ja stiga körfur í 16 tilraunum. Stólarnir eru nú í 6. - 8. sæti deildarinnar með 12 stig en eru aðeins 4 stigum á eftir liðunum í 2. - 3. sæti.

Í samtali við Vísi eftir leik sagði Bárður Eyþórssn þjálfari að þetta hafi verið stórkostlegur sigur hjá Stólunum. „Þetta var stórkostlegur sigur hjá okkur,“ sagði Bárðir Eyþórsson, þjálfari Tindastóls, eftir sigurinn í kvöld. „Við einhvernvegin höfðum aldrei trú á því að við værum að fara tapa þessum leik. Liðið hefur núna alltaf trú á því í jöfnum leikjum að við getum unnið leikina. Við erum með mikið sjálfstraust núna og erum með breiðan hóp. Álagið dreifist vel á milli leikmanna og það skilaði okkur líklega þessum sigri í kvöld“.

Stig Tindastóls: Miller 30 / 7 stoðsendingar, Allen 17 / 19 fráköst, Svabbi 13, Þröstur Leó 11, Rikki 8, Helgi Freyr 3, Loftur Páll 2, Helgi Rafn 2 og Luttman 2.

Fleiri fréttir