Tindastóll og Stjarnan etja kappi í kvöld

Stólarnir mæta Stjörnunni í tólftu umferð Iceland Express deildarinnar, íþróttahúsinu í Garðabæ í kvöld, 19. janúar kl. 19:15. Bæði liðin eru ákaflega öflug og því útlit fyrir hörkuleik.

Stjarnan er í öðru sæti deildarinnar en eitthvað hefur hallað undan fæti hjá þeim upp á síðkastið og þeir tapað sl. tveimur leikjum. Tindastóll er nú í sjötta til níunda sæti, ásamt ÍR, Fjölni og Snæfelli með jafnmörg stig, en eins og segir á heimasíðu Tindastóls þá eru:

„Tindastólsstrákarnir eins og allir vita bullsjóðandi heitir þessa daganna og ef keppnistímabilið hjá strákunum væri bíómynd þá væru þeir líklega í miðju "montage" undir laginu Bad to the Bone eða Eye of the Tiger.“

Stuðningsmenn Tindastóls eru beðnir að fjölmenna í íþróttahúsið í Garðabæ og hvetja strákana til dáða en þeir sem sjá sér ekki fært að mæta geta fylgst með leiknum í beinni útsendingu á Tindastól TV. Útsendingunni verður einnig varpað beint á Kaffi Krók, fyrir þá sem vilja horfa á leikinn í góðum félagsskap.

Fleiri fréttir