Tindastóll – Snæfell í kvöld
Í kvöld má vænta þess að hart verði tekist á í Síkinu á Sauðarkróki er Tindastóll mætir Snæfelli í seinni hluta Iceland Express deildarinnar í körfubolta. Tindastóll átti góðan endasprett fyrir jólafrí og sigraði fjóra leiki í röð en kemur nú með breytt lið þar sem Trey Hamton var látinn fara en tveir nýir komnir í staðinn, Curtis Allen og Myles Luttman.
Luttman er breskur miðherji, 210 sm á hæð en kemur frá Bandaríkjunum þar sem hann var í skóla. Miklar vonir eru bundnar við Luttman og verður gaman að sjá hvernig hann fellur inn í leik liðsins en stífar æfingar hafa verið undanfarið til að koma nýjum leikmönnum inn í leikkerfin og er Bárður Eyþórsson þjálfari nokkuð sáttur með liðið í dag og stöðu þess.
-Við fórum eins og er vitað rólega af stað en erum búnir að girða okkur aðeins í brók og tekið nokkra góða sigra, segir Bárður en honum líst vel á leikinn í kvöld. -Snæfell er með hörkulið og sjálfsagt ekki ánægðir með stöðuna hjá sér. Þeir eru vel mannaðir og ætla sér eðlilega að rífa sig upp á nýju ári. Við búumst við hörkuleik og þetta verður án efa spennandi leikur og skemmtilegur.
Bárður segir að það verði að koma í ljós hvort áhorfendur sjái breytingar á liðinu. -Allar breytingar taka tíma og til að mynda eru bæði Curtis og Mylo að spila sína fyrstu heimaleiki en ég vona að við sjáum áframhaldandi breytingar á liðinu á þessu ári. Aðspurður hvort nauðsynlegt sé að vera með þrjá erlenda leikmenn þar sem laggt var upp með tvo í upphafi tímabils segir Bárður:
-Með útlendingsmálin veit ég ekki hvernig lagt var af stað í haust en ég tel að með þessum þremur séum við komnir með meiri breidd og meiri samkeppni innan liðsins sem er alltaf af hinu góða. Svo að lokum vil ég hvetja bæjarbúa til að koma í Síkið í kvöld og hvetja liðið sitt til sigurs. Þeirra þáttur er gríðarlega mikilvægur fyrir leikinn sem og framhaldið.
Fullvíst má telja að Tindastólsliðið fari inn í nýtt ár fullir sjálfstrausts eftir mikinn viðsnúning frá því er keppni hófst í haust.
Tindastóll situr nú í 9. sæti deildarinnar með 8 stig, jafnmörg og Njarðvík sem er í því 8. en Snæfell, andstæðingar kvöldsins, er sæti neðar með 6 stig.
Í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins keppir Tindastóll hér heima gegn Þór Þorlákshöfn sunnudaginn 8. jan kl. 19.15.
Staðan í deildinni:
- 1. Grindavík 8/1 16
- 2. Stjarnan 7/2 14
- 3. Keflavík 6/3 12
- 4. Þór Þorlákshöfn 5/4 10
- 5. ÍR 5/4 10
- 6. Fjölnir 5/4 10
- 7. KR 5/4 10
- 8. Njarðvík 4/5 8
- 9. Tindastóll 4/5 8
- 10. Snæfell 3/6 6
- 11. Haukar 2/7 4
- 12. Valur 0/9 0