Tindastólsstelpurnar fyrstar til að leggja Stjörnustúlkur í parket
Stúlkurnar í Tindastóli urðu í gær fyrsta liðið í 1. deild kvenna til þess að vinna sigur á Stjörnunni. Liðin áttust við í Ásgarði í Garðabæ þar sem Tindastóll fór með 62-70 sigur af hólmi eftir æsispennandi og dramatískan leik.
Stjarnan hafði yfirhöndina framan af leik og komst í 31-20 í 2. leikhluta en Tindastóll skoraði sjö síðustu stig hálfleiksins og minnkaði muninn í eitt stig, 33-32.
Spilandi þjálfari Tindastólsliðsins, Tashawna Higgins, tók yfir í seinni hálfleiknum þar sem hún var með 20 stig, 8 fráköst og 9 stolna. Endaði með fernu; gerði 32 stig, tók 14 fráköst, stal 13 boltum og fiskaði 10 villur og geri aðrir betur.
Stjarnan var reyndar sex stigum yfir þegar fjórði leikhluti hófst en þá áttu Stólurnar alveg frábæran kafla, breyttu stöðunni úr 52-46 í 52-62, 16-0 kafli þar sem Higgins og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir sáu um að gera stigin. Stjörnustelpur náðu að minnka muninn í tvö stig þegar tvær og hálf mínúta var eftir, 62-64, en það voru Tindastólsstúlkur sem voru sterkari á endasprettinum og unnu frábæran átta stiga sigur.
Linda Þórdís Róbertsdóttir var frábær í fyrri hálfeik og endaði leikinn með 12 stig og 10 fráköst og þá áttu Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir (10 stig) og Bríet Lilja Sigurðardóttir (11 stig, 5 fráköst og 5 stoðs.) fínan leik.
Með sigrinum komst lið Tindastóls í fjórða sæti 1. deildar en stelpurnar hafa leikið fimm leiki, sigrað í þremur en tapað tveimur.
Heimild: karfan.is og kki.is