Tindastólsstúlkur í stórræðum í kvöld
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
09.05.2014
kl. 17.04
Kvennalið Tindastóls spilar í kvöld klukkan 19:00 við lið KR í úrslitaleik C-riðils í Deildarbikar KSÍ. Stelpurnar hafa staðið sig með miklum glæsibrag í mótinu og því alveg gráupplagt fyrir stuðningsmenn Stólanna að fjölmenna á KR-völlinn í kvöld og hvetja þær til góðra verka.
Lið Tindastóls sló Álftanes úr leik í undanúrslitum en leikurinn endaði 2-2 en hinar fótfráu skagfirsku hnátur höfðu betur í vítaspyrnukeppni.
Feykir óskar þeim góðs gengis í kvöld – áfram Tindastóll!