Tíu barna móðir í Hrútafirði

Sigrún Elísabet Arnardóttir, tíu barna móðir í Hrútafirði, var viðmælandi Ragnhildar Steinunnar í fyrsta þætti vetrarins af Ísþjóðinni. Mynd: ruv.is.
Sigrún Elísabet Arnardóttir, tíu barna móðir í Hrútafirði, var viðmælandi Ragnhildar Steinunnar í fyrsta þætti vetrarins af Ísþjóðinni. Mynd: ruv.is.

Sigrún Elísabet Arnardóttir á Eyjanesi í Hrútafirði er yngsta núlifandi íslenska konan sem eignast hefur tíu börn. Fjallað var um fjölskylduna í Eyjanesi í fyrsta þætti vetrarins af Ísþjóðinni sem sýndur var á RÚV í gærkvöldi.

Sigrún var 17 ára þegar hún eignaðist fyrsta barnið sitt og 35 ára þegar tíunda barnið kom í heiminn, fyrr á þessu ári. Börnin eru á aldrinum 9 mánaða, 2 ára, 3, 5, 8, 10, 13, 15, 17 og 19 ára. Auk þess á eiginmaður hennar, Albert, þrjú börn úr fyrra sambandi. Þá hafa hjónin einnig tekið að sér nokkur fósturbörn bæði til lengri eða skemmri tíma. Þrjú börn hafa dvalið hjá fjölskyldunni lengur en eitt ár.

Fram kom í þættinum að þrátt fyrir að fjölskyldan sé stór fara þau öll saman til útlanda einu sinni á ári. Segir Sigrún eiginmann sinn sífellt þurfa að bæta fénaði við bústofninn því að barnahópurinn stækki.

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og og Eiríkur Ingi Böðvarsson fylgt fjölskyldunni eftir undanfarið ár, en þáttinn má sjá á Sarpinum næstu tvær vikurnar.

Fleiri fréttir