Tónleikar í Byggðasafninu á Reykjum

Kirkjukór Hvammstanga ásamt Barnakór Tónlistarskólans og félögum úr Kirkjukór Melstaðar- og Staðarbakkasókna heldur tónleika í Byggðasafninu á Reykjatanga síðasta vetrardag, miðvikudaginn 22. apríl n.k. kl. 20:30.

Á efnisskránni er þjóðleg tónlist í stíl við umhverfið. Stjórnandi er organisti Hvammstangakirkju, Pálína Fanney Skúladóttir. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Fleiri fréttir