Tónleikar til heiðurs Erlu Þorsteins
Meðal dagskrárliða á Lummudögum í ár verða tónleikar Hreindísar Ylfu og hljómsveitar til heiðurs Erlu Þorsteins, í tilefni af 80 ára afmæli hinnar skagfirsku söngkonu. Verða þeir haldnir í Bifröst 29. júní og er miðasala hafin á midi.is, eins og fram kemur á fésbókarsíðu Lummudaga.
Söng- og leikkonan Hreindís Ylva hefur á undanförnum árum verið að heiðra skagfirsku söngkonuna Erlu Þorsteinsdóttur og hefur ásamt hljómsveit sinni komið fram á rúmlega 20 tónleikum henni til heiðurs og gefið út 13 laga geisladisk með lögum sem Erla söng. Lögum eins og Heimþrá, Kata rokkar, Þrek og tár og Draumur fangans. Erla Þorsteinsdóttir varð 80 ára á árinu og því blása Hreindís Ylva og hljómsveit hennar í samstarfi við Lummudaga á Króknum til afmælistónleika henni til heiðurs.
Með Hreindísi Ylvu í hljómsveitinni eru Sigurður Ingi Einarsson, trommur, Páll Sólmundur, bassi, Tómas Jónsson, hljómborð, Yngvi Rafn Garðarsson Holm, gítar og Snæbjörn Gauti, saxafónn
Tónleikarnir verða i Bifröst á Sauðárkróki laugardagskvöldið 29. júní nk og hefjast kl 21. Miðasala hefst á www.midi.is í byrjun júní og einnig er hægt að tryggja sér miða i síma 8660114. Vakin er athygli á því að Bifröst er ekki ýkja stór staður svo það er um að gera að tryggja sér miða í tíma.
Aðrir tónleikar verða á Græna Hattinum á Akureyri fimmtudagskvöldið 27. júní og verður einnig hægt að nálgast miða á þá tónleika á www.midi.is