Tónlistarhátíðin Gæran - myndband
Tónlistarhátíðin Gæran verður haldin fjórða árið í röð í húsakynnum Loðskinns á Sauðárkróki, dagana 15. til 17. Ágúst 2013.
Gæran er lítil hátíð sem leggur áherslu á að bjóða upp á vandaða og fjölbreytta tónlist, ný og upprennandi bönd í bland við reyndari tónlistarmenn. Undanfarin ár hefur mikill fjöldi tónlistarfólks spilað fyrir gesti Gærunnar. Í fyrra voru 56 hljómsveitir sem sóttu um og af þeim voru 20 valdar til að stíga á stokk. Í ár sóttu 62 hljómsveitir um og af þeim hafa 22 verið valdar til að spila fyrir gesti Gærunnar í ágúst.
Hér er hægt að sjá myndband frá því á Gærunni í fyrra