Tvær tilnefningar til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla
feykir.is
Skagafjörður
30.04.2014
kl. 08.19
Heimili og skóli tilnefnir árlega nokkur verkefni til Foreldraverðlauna og að þessu sinni eru tvö verkefni í skólum í Skagafirði sem hlutu tilnefningar. Fræðsluskrifstofa Skagafjarðar fær tilnefningu fyrir Vinaliðaverkefnið og leikskólinn Tröllaborg og Grunnskólinn austan Vatna fá tilnefningu fyrir bækling fyrir ferðamenn.
Verðlaunaafhendingin verður í Þjóðmenningahúsinu 8. maí og þar verða einnig veitt hvatningarverðlaun til verkefnis sem talið er að muni skila árangri til framtíðar og dugnaðarforkaverðlaun. Skagafjörður.is segir frá þessu.