Tveir unnu í Jólagetraun Landsbankans á Sauðárkróki

Dregið hefur verið í getraunin sem fram fór í opnu húsi hjá Landsbankanum þann 30. nóvember, þegar kveikt var á jólatrénu á Kirkjutorgi á Sauðárkróki. Getraunin gekk út á að giska á fjölda sælgætismola í krukku. Tveir giskarar voru næstir réttri tölu með 334 stykki en réttur molafjöldi var 337.

Þau Árni Gísli Brynleifsson  og Apríl Hafstað (með dyggri aðstoð Aðalbjargar dagmömmu) giskuðu næst réttum molafjölda og fá fyrir vikið kr. 15.000 í verðlaun hvort um sig.

Fjöldi þátttakenda var 190.

Fleiri fréttir