Tvennir tónlistarviðburðir í Hólaneskirkju á sunnudag
Á vef Húna er sagt frá því að sönghópur Félags eldri borgara í Skagafirði mun halda söngskemmtun í Hólaneskirkju sunnudaginn 11. maí nk. Um kvöldið verður svo dægurlagamessa í kirkjunni þar sem kór Hólaneskirkju syngur við undirleik hljómsveitar kirkjunnar.
Söngskemmtun Félags eldri borgara í Skagafirði hefst kl.15:00. Söngskráin verður fjölbreytt en söngstjóri og undirleikari er Jóhanna Marín Óskarsdóttir. Þorbergur Skagfjörð Jósefsson sér um einsöng og Hermann Jónsson leikur á harmonikku. Aðgangur á skemmtunina er ókeypis.
Um kvöldið verður svo dægurlagamessa í kirkjunni og hefst hún kl.20:30. Flutt verða þekkt dægurlög eftir Guðmund Jónsson, Bubba Morthens, Geirmund Valtýsson, Magnús Kjartansson og fleiri. Aðrir liðir messunnar verða meðal annars bæn, ritiningarlestur og hugleiðing sem verður í höndum séra Bryndísar Valbjarnardóttur.