Tvö meistaramót um helgina
Ungmennasamband Skagafjarðar heldur meistaramót Íslands í fjölþrautum nú um helgina, eða dagana 20.-21. júlí. Einnig heldur sambandið meistaramót öldunga sömu helgi. Keppt verður í tugþraut karla og sjöþraut kvenna og almennum greinum í öldungaflokki, segir í tilkynningu frá frjálsíþróttaráði UMSS.
Það er því um að gera að mæta á völlinn og hvetja keppendur til dáða.