Um 700 á jólatónleikum Geirmundar
Talið er að alls hafi um sjö hundruð gestir mætt á tvenna jólatónleika Geirmundar Valtýssonar sem haldnir voru í Menningarhúsinu Miðgarði í gær. Ásamt Geirmundi komu fram nokkrir landsþekktir söngvarar, tvær afastelpur Geirmundar og Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps ásamt hljómsveit undir styrkri stjórn Vilhjálms Guðjónssonar. Kynnir kvöldsins var Þorgeir Ástvaldsson.
Tónleikarnir voru haldnir í tilefni af útgáfu á fjórtándu plötu Geirmundar, sem heitir Jólastjörnur Geirmundar og inniheldur eingöngu jólalög. Lögin eru öll samin af Geirmundi en ýmsir textahöfundar, margir hverjir skagfirskir, koma við sögu.
Söngvararnir sem fram komu á tónleikunum voru, auk Geirmundar, Sigga Beinteins, Helga Möller, Ari Jónsson, Páll Rósinkranx, Sigfús Álftagerðisbróðir, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og afastelpurnar Anna Karen Hjartardóttir og Valdís Valbjörnsdóttir.
Hljómsveitina skipuðu Jóhann Hjörleifsson, Finnbogi Kjartansson, Magnús Kjartansson, Vilhjálmur Guðjónsson, Þorleifur Gíslason, Rögnvaldur Valbergsson, Ásgeir Steingrímsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir.
Mikil stemming var á báðum tónleikunum og var Geirmundur að vonum ánægður með hvernig til tókst og góða aðsókn.