Umsátri á Sauðárkróki lokið
feykir.is
Skagafjörður
04.12.2013
kl. 16.22
Umsátrinu, því sem lögreglan á Sauðárkróki ásamt Víkingasveit frá Akureyri var með í Hásæti í dag, er lokið en til þess var ráðist laust eftir hádegi eftir að íbúi við götuna hafði haft samband við Neyðarlínuna og sagðist vera búinn að birgja sig upp af skotvopnum og hótaði að beita þeim. Ekki er laust við að skelfing hafi gripið um sig meðal íbúa hverfisins vitandi um nýliðna atburði í Reykjavík en í þetta skiptið var engu skoti hleypt af.
Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar yfirlögreglumanns náðist símasamband við manninn sem féllst að lokum á að hleypa lögreglunni inn og var hann handtekinn í kjölfarið. Samkvæmt heimildum Feykis á maðurinn við andleg veikindi að stríða.