Umsóknarfrestur í Húnasjóð að renna út

Á vef Norðanáttar er sagt frá því að á morgun, miðvikudaginn 10. júlí, er lokadagur til að skila inn skriflegum umsóknum um styrk úr Húnasjóði vegna ársins 2013. Umsóknunum skal skilað inn á skrifstofu Húnaþings vestra að Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga á þar til gerðum eyðublöðum.

Húnasjóð stofnuðu hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra. Á hverju ári er framlagi Húnaþings vestra ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls úthlutað í styrki.

Umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofu Húnaþings vestra eða á heimasíðunni www.hunathing.is, undir liðnum Eyðublöð.

Fleiri fréttir