Umsóknarfrestur í Húnasjóð til 10. júlí
Umsóknarfrestur til að sækja um styrk í Húnasjóð rennur út 10. júlí næstkomandi. Sjóðurinn var stofnaður af hjónunum Ásgeiri Magnússyni og Unni Ásmundsdóttur, til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra.
Samkvæmt skipulagsskrá fyrir Húnasjóð sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 12. október 2000 skal sveitarsjóður leggja sjóðnum árlega til fé skv. fjárhagsáætlun hverju sinni. Árlegu framlagi Húnaþings vestra ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls skal úthluta í styrki á ári hverju. Skriflegar umsóknir um styrk vegna ársins 2013 ásamt lýsingu á námi skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga á þar til gerðum eyðublöðum í síðasta lagi 10. júlí n.k.
Umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins eða á heimasíðunni www.hunathing.is undir liðnum eyðublöð.