Unglingalandsmótið 2014 verður í Skagafirði

ULM 2011 fór fram á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina. Á síðasta ári var tilkynnt að ULM2012 yrði á Selfossi, þar sem 26. Landsmót UMFÍ 2013 fer einnig fram á nýjum og glæsilegum velli. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sagði við setningu mótsins á Egilsstöðum, að ULM 2013 yrði á Hornafirði. Hún tilkynnti einnig að 17. Unglingalandsmót UMFÍ 2014 hefði verið sett í umsjá UMSS, og að það yrði haldið á Sauðárkróki.

 Á heimasíðu frjálsíþróttadeild Tindastóls segir; „Við Skagfirðingar verðum oft varir við það víða um land, að mjög margir telja Sauðárkrók heppilegasta stað fyrir mót af þessu tagi, og eiga góðar minningar frá fyrri mótum á Króknum.

Allt er hér á "sömu torfunni", frjálsíþrótta- og knattspyrnuvellir, íþróttahús, sundlaug, golfvöllur, reiðhöll og aðstaða fyrir allar aðrar keppnisgreinar. Tjaldstæðin eru einnig í stuttu göngufæri, sem er óvenjulegt og skiptir mjög miklu máli.

Við skulum heldur ekki gleyma því, að fyrir 3 árum var Sauðárkróksvöllur kosinn "Skemmtilegasti frjálsíþróttavöllur landsins" í opinni kosningu á síðu FRÍ, góður völlur, gott umhverfi og góðir starfsmenn.

Við getum alveg verið stolt af íþróttaaðstöðunni okkar, en við getum líka verið sammála um, að nauðsynlegt er að bæta sundaðstöðuna á Sauðárkróki, hún samræmist ekki alveg hugmyndinni okkar um "Íþróttahéraðið Skagafjörð".

Skagfirðingar !

Stöndum saman um glæsilegt ULM 2014 !”

Fleiri fréttir