Uppboð til styrktar Krabbameinsfélagi Skagafjarðar

Kiwanisklúbbsins Drangey og Krabbameinsfélags Skagafjarðar stóð að Fræðsluráðstefnu í tilefni af Mottumars sl. þriðjudagskvöld. Rúmlega 130 manns mættu í hátíðarsal FNV þetta kvöld og var fræðsluráðstefna mjög góð og áheyrendur ánægðir með það sem fram fór.

Frá Fræðsluráðstefnu í tilefni Mottumars. Ljósmynd/Magnús Helgason.

Valur Þór Marteinsson þvagfæraskurðlæknir flutti fyrirlestur um blöðruhálskirtilskrabbamein og var var það mjög fróðlegt og skemmtilegt erindi, að sögn Ólafs Jónssonar. Í frétt í nýjasta tölublaði Feykis er Ólafur sagður vera formaður Kiwanisklúbbsins en það mun ekki vera rétt, heldur er hann formaður nefndarinnar sem hefur þetta verkefni fyrir höndum.

Félagar úr Karlakórnum Heimi opnuðu ráðstefnuna með laginu „Hraustir menn“ og fluttu einnig nokkur lög við lok ráðstefnunnar. Karlakórinn hefur ákveðið að gefa eina bláa Mottumars slaufu og verður hún boðin upp til styrktar Krabbameinsfélags Skagafjarðar. Boð í slaufuna eiga að sendast á netfangið gottigogginn@simnet.is og verður tilkynnt um hæstbjóðanda í Feyki að viku liðinni, þann 27. mars.

Fleiri fréttir