Upplestur og tónlist í Safnahúsinu

Miðvikudagskvöldið 4. desember kl. 20.00 verður lesið úr nýjum bókum í Safnahúsi Skagfirðinga á Sauðárkróki. Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir les úr bók sinni: Alla mína stelpuspilatíð  og Örlygur Kristfinnsson les úr bókinni: Svipmyndir úr síldarbæ II. Í tilkynningu frá Safnahúsinu segir að því miður hafi Guðmundur Andri Thorsson forfallast en Björn Björnsson mun lesa úr bókinni: Sæmd,eftir Guðmund Andra.

Einnig munu þau Silla og Fúsi Ben kynna nýja diskinn sinn: Tímamót – behind the mountains.

Allir hvattir til að koma í Safnahúsið annað kvöld og njóta þess að hlusta.

Fleiri fréttir