Upprekstur búfjár í Kirkjuhvamm
Að undangenginni úttekt héraðsfulltrúa Landgræðslu ríkisins hefur verið ákveðið að heimila upprekstur búfjár í Kirkjuhvamm árið 2013.
Upprekstur búfjár í Kirkjuhvamm árið 2013 verður skv. eftirfarandi:
Sauðfé frá og með 10. júní nk. og hross frá og með 28. júní nk.
Skúli Þórðarson, sveitastjóri á Hvammstanga, biður þá íbúa sem eiga lögheimili í fyrrum Hvammstangahreppi og hyggjast nýta sér heimild til upprekstrar búfjár í Kirkjuhvamm að tilkynna það skriflega til skrifstofu Húnaþings vestra og tilgreina jafnframt fjölda búfjár sem sleppt verður. Húnaþing vestra segir frá þessu.