Uppskeruhátíð Æskulýðsstarfsins hjá Þyt
Á föstudaginn var uppskeruhátíð Æskulýðsstarfsins hjá Hestamannafélaginu Þyt. Fjöldi fólks mætti og í boði voru pítsur, gos og kökur.
Á vef Þyts segir að uppskeruhátíðin þetta árið var einstaklega skemmtileg þar sem Æskulýðsnefndin tók á móti Æskulýðsbikar LH en Sigrún afhenti nefndinni hann eftir að hafa sjálf tekið við honum á LH þinginu eins og áður hefur komið fram.
Veittar voru viðurkenningar fyrir knapa ársins í barna- og unglingaflokki. Í barnaflokki var það Eydís Anna Kristófersdóttir sem stóð hæst á árinu og í unglingaflokki var það Aðalheiður Einarsdóttir en hún var ekki viðstödd en tók við viðurkenningunni á Uppskeruhátíðinni á laugardagskvöldinu. Alla fór svo yfir starfið á árinu og síðan veitti Hedda viðurkenningar fyrir þátttöku á námskeiðum ársins og að lokum var tekin hópmynd af öllum með æskulýðsbikarinn.