Úrslit í Firmakeppni Þyts

Þytsfélagar áttu skemmtilegan dag á laugardaginn, þegar fram fór Firmakeppni félagsins. Eftir að keppni lauk var ratleikur og svo grillaðar pylsur fyrir félagsmenn. Á heimasíðu félagsins færir Firmakeppnisnefnd öllum styrktaraðilum kærlega fyrir stuðninginn, keppendum, gestum og  sjálfboðaliðum fyrir skemmtilegan dag.  Myndir frá deginum má sjá á heimasíðu Þyts en úrslit keppninnar eru hér að neðan:

Pollar:

Rakel Gígja Ragnarsdóttir 8 ára og Freyðir frá Grafarkoti
Indriði Rökkvi Ragnarsson 5 ára og Gifta frá Grafarkoti
Guðmar Hólm Ísólfsson 6 ára og Rökkvi frá Dalsmynni
Arnar Hauksson 8 ára og Glitnir frá Kornsá 2
Bergdís Ingunn Einarsdóttir 8 mánaða og Magnea frá Syðri Völlum

Barnaflokkur:

1 sæti: Ásta Unnsteinsdóttir og Kolbrá frá Kolbeinsá, kepptu fyrir Steypustöðina
2 sæti: Eysteinn Kristinsson og Goði frá Ey, kepptu fyrir Verktakaþjónustu Vignis

Unglingaflokkur:

1 sæti: Kristófer Smári Gunnarsson og Óttar frá Efri-Þverá, kepptu fyrir Gistiheimili Hönnu Siggu
2 sæti: Fríða Björg Jónsdóttir og Skuggi frá Brekku, kepptu fyrir Ferðaþjónustuna Dæli

Kvennaflokkur:

1 sæti: Sigríður Ása Guðmundsdóttir og Kveikur frá Sigmundarstöðum, kepptu fyrir Dýrin mín stór og smá
2 sæti: Herdís Einarsdóttir og Prufa frá Grafarkoti, kepptu fyrir Kaupfélag V-Hún
3 sæti: Sigurbjörg Þórunn Marteinsdóttir og Magnea frá Syðri Völlum, kepptu fyrir Vélaverkstæði Hjartar Eiríks

Karlaflokkur:

1 sæti: Magnús Ásgeir Elíasson og Elding frá Stóru-Ásgeirsá, kepptu fyrir Stóru Ásgeirsá
2 sæti: Ragnar Smári Helgason og Vottur frá Grafarkoti, kepptu fyrir Grafarkotsbúið
3 sæti: Gunnar Reynisson og Muni frá Syðri Völlum, kepptu fyrir Leirhús Grétu

Fleiri fréttir