Úrslit í vísnakeppni Sæluviku
Úrslitin í vísnakeppni Sæluviku hafa nú verið kynnt. Það var Páll Friðriksson sem sá um keppnina að þessu sinni og kynnti hann úrslitin á sviði sýningarinnar Lífsins gæði og gleði í dag. Vinningsvísurnar eru birtar hér en keppninni verða gerð nánari skil í þarnæsta tölublaði Feykis.
Besta botninn að þessu sinni á Benedikt Benediktsson bóndi á Vatnsskarði og mærir hann dýrð Skagafjarðar á eftirfarandi hátt:
Skagafjörður skartar dýrð
og skaparans er prýði.
Eflaust verður aldrei skýrð
öll sú listasmiði.
Bestu vísuna átti svo Gunnar Rögnvaldsson, sem virðist hafa verið efins þegar hann fór í fyrsta sinn í kjörklefann. En eitthvað hefur það lagast með tímanum þo heitin séu sjaldan efnd. Því lýsir hann í vísunni sem dómnefndin taldi eiga skilið fyrsta sætið í keppninni þetta árið:
Fagurt galar flokkurinn
fáir efna heitin.
Í klefanum fer krossinn minn
á kunnuglega reitinn.