Úrslit í Vodafone/Rafsjámótinu - Norðvesturþrenna II

Laugardaginn 3. ágúst sl. fór fram Vodafone  – Rafsjá mótið sem er hluti af Norðvesturþrennunni. Leikfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf.  Veitt voru verðlaun fyrir 9 efstu sætin.

Helstu úrslit voru sem hér segir:

1. Sölvi Björnsson GSS                    39 punktar.

2. Sveinn Allan Morthens GSS     38 punktar

3. Arnar Geir Hjartarson GSS       36 punktar.

4. Einar Ágúst Gíslason GSS           36 punktar.

5.  Ólafur Árni Þorbergsson GSS    34 punktar.

6. Ingibjörg Guðjónsdóttir GSS      34 punktar.

7. Valgeir Valgeirsson GÓS              34 punktar.

8. Ólöf Hartmannsdóttir GSS            33 punktar.

9. Kristján B. Sveinsson GHD            32 punktar.

Hlynur Freyr Einarsson var næstur holu eða 4,62 cm á 6/15 braut og Sólborg Hermundsdóttir var 45 cm frá holu í öðru höggi á 9/18 braut.  Vinningshöfum er óskað til hamingju með góðan árangur sem og öllum þátttakendum fyrir þátttökuna en aðstæður voru fremur erfiðar eða 12-14 m/sek og 9 stiga hiti.

Nú fer að síga á seinni hluta sumars og mótum að fækka. Næsta laugardag verður haldið mót þar sem keppt verður í tveimur flokkum. Annars vegar fyrir þá sem eru með 18,5 og hærri forgjöf og hins vegar kylfinga með lægri forgjöf. Þeir sem eru að byrja í golfi geta því keppt við þá bestu á sama grundvelli. Skráning er á www.golf.is Golfklúbbur Sauðárkróks segir frá þessu.

 

Fleiri fréttir