Úrslit Opna Fiskmarkaðsmótsins
Opna Fiskmarkaðsmótið í golfi var haldið á Háagerðisvelli, Skagaströnd, laugardaginn 22. júní sl. Mótið er fyrsti hluti svokallaðar Norðvesturþrennu golfklúbbanna á Skagaströnd, Blönduósi og Sauðárkróki. Alls tóku 35 keppendur þátt í mótinu. Veður var með ágætum og allar aðstæður til spilamennsku góðar.
Úrslit urðu sem hér segir:
Kvennaflokkur án forgjafar
- Guðrún Ásgerður Jónsdóttir GÓS 90 högg
- Aldís Ósk Unnarsdóttir GSS 91 högg
- Sigríður Eygló Unnarsdóttir GSS 95 högg
Karlaflokkur án forgjafar
- Brynjar Bjarkason GÓS 77 högg
- Oddur Valsson GSS 79 högg
- Arnar Geir Hjartarson GSS 82 högg
Punktakeppni með forgjöf
- Hafþór Smári Gylfason GSK 37 punktar
- Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson GÓS 35 punktar
- Einar Ágúst Gíslason GSS 34 punktar