Úrslitakeppni Stærðfræðikeppni FNV, MTR og 9. bekkjar í dag
feykir.is
Skagafjörður
02.05.2014
kl. 08.41
Úrslitakeppni Stærðfræðikeppni FNV, MTR og 9. bekkjar fer fram í sal Bóknámshúss FNV á Sauðárkróki í dag , föstudaginn 2. maí, kl. 14:00. Á Facebook síðu skólans segir að úrslit verða kynnt kl. 16:45 og eru allir velkomnir.
Eftirtaldir nemendur keppa til úrslita:
- Anton Þór Einarsson, Höfðaskóla
- Björn Vilhelm Ólafsson, Grunnskóla Fjallabyggðar
- Elínborg Ósk Halldórsdóttir, Varmahlíðarskóla
- Eyþór Hermannsson, Árskóla
- Guðjón Alex Flosason, Grunnskóla Hólmavíkur
- Gunnar Freyr Þórarinsson, Varmahlíðarskóla
- Halldór Broddi Þorsteinsson, Árskóla
- Heimir Sindri Þorláksson, Grunnskólanum austan Vatna
- Hilmar Logi Óskarsson, Húnavallaskóla
- Hjörleifur H. Sveinbjarnarson, Dalvíkurskóla
- Kristrún Hilmarsdóttir, Blönduskóla
- Páll Halldórsson, Höfðaskóla
- Sabrina Rosazza, Dalvíkurskóla
- Sara María Gunnarsdóttir, Grunnskóla Fjallabyggðar
- Þorgeir Örn Sigurbjörnsson, Grunnskóla Fjallabyggðar
Samkvæmt heimasíðu FNV er stærðfræðikeppnin styrkt af fyrirtækjum og stofnunum á Norðurlandi og eru verðlaun afar glæsileg.