Úrtaka fyrir FM og gæðingamót Þyts

Á laugardaginn fór fram úrtaka fyrir Fjórðungsmót og gæðingamót Þyts á Hvammstanga. Mótið gekk vel, að því er segir á heimasíðu félagsins og voru sterkir hestar mættir til leiks en þátttaka hefur oft verið meiri. Ekki var keppt í úrslitum í barnaflokki þar sem aðeins einn keppandi var skráður til leiks. Þytur má senda sex hesta í hvern flokk á FM sem haldið verður á Kaldármelum 3. - 7. júlí nk.

A flokkur
1. Skyggnir frá Bessastöðum / Jóhann Magnússon 8,50
2. Gandálfur frá Selfossi / Ísólfur Líndal Þórisson 8,46
3. Álfrún frá Víðidalstungu II / Ísólfur Líndal Þórisson 8,30
4. Bylting frá Stórhóli / Elvar Logi Friðriksson 8,19
5. Dimma frá Stóru Ásgeirsá / Magnús Ásgeir Elíasson 7,64

B flokkur
1. Freyðir frá Leysingjastöðum II / Ísólfur Líndal Þórisson 8,90
2. Grettir frá Grafarkoti / Herdís Einarsdóttir 8,70
3. Brúney frá Grafarkoti / Fanney Dögg Indriðadóttir 8,50
4. Oddviti frá Bessastöðum / Jóhann Magnússon 8,41
5. Sveipur frá Miðhópi / Gréta B Karlsdóttir 8,23

Ungmennaflokkur
1. Jónína Lilja Pálmadóttir / Svipur frá Syðri-Völlum 8,35 (eftir að dómarar röðuðu í sæti)
2. Jóhannes Geir Gunnarsson / Nepja frá Efri-Fitjum 8,35
3. Fríða Marý Halldórsdóttir / Stella frá Efri-Þverá 8,11
4. Eydís Anna Kristófersdóttir / Arfur frá Höfðabakka 8,03
5. Cecilia Olsson / Frosti frá Höfðabakka 7,95

Unglingaflokkur
1. Helga Rún Jóhannsdóttir / Embla frá Þóreyjarnúpi 8,41
2. Kristófer Smári Gunnarsson / Krapi frá Efri-Þverá 8,21
3. Viktor Jóhannes Kristófersson / Flosi frá Litlu-Brekku 8,20
4.  Birna Olivia Ödqvist / Hökull frá Dalbæ 8,20
5. Nína Guðbjörg Gunnarsdóttir / Birta frá Efri-Fitjum 7,63

100 m skeið

1. Kristófer Smári Gunnarsson og Kofri frá Efri-Þverá 8,38
2. Jóhann Magnússon og Hvirfill frá Bessastöðum 8,41
3. Ísólfur Líndal Þórisson og Flosi frá Búlandi 8,66
4. Elvar Logi Friðriksson og Karmen frá Grafarkoti 8,93

Úrslit úr forkeppni og fleiri myndir frá mótinu er að finna á heimasíðu Þyts.

Fleiri fréttir