Úthafsrækjuveiðibann bagalegt fyrir útgerðina
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur stöðvað veiðar á úthafsrækju frá 1. júlí sl. þar sem afli þeirra sem þær stunda er orðinn umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar á yfirstandandi fiskveiðiári sem stendur til 31. ágúst. Þröstur Friðfinnsson framkvæmdastjóri Dögunar á Sauðárkróki segir bannið mjög bagalegt fyrir rækjuútgerðina þar sem þetta eru alla jafna tveir hagstæðustu mánuðir ársins til veiða.
Þá er einnig mjög slæmt að búið sé að gefa út að hugsanlega verði form veiðanna endurskoðað, en ekkert er enn komið fram um hvort eða hvernig það verði gert, segir Þröstur.
-Í dag veit því enginn hvernig veiði verður háttað frá 1. september, hvort hún verður frjáls eða kvótasett og þá hvernig. Þetta setur rækjuútgerði í uppnám og var ekki á bætandi fyrir greinina. Því er alger nauðsyn að fara að fá fram hvað ráðamenn ætla sér með rækjuna, segir Þröstur en hann telur að frekar ætti að stöðva veiðar yfir harðasta vetrartímann þegar þær eru óhagkvæmastar í stað þess að taka bestu mánuðina út.