Útkall númer tvö á árinu 2014

Björgunarsveitin Húnar fékk útkall númer tvö á árinu 2014 í gær. Lögreglan óskaði eftir aðstoð við erlenda ferðamenn, hjón frá Englandi sem lentu í hremmingum á veginum við Borgavirki.

Farið var á Húna 2 á staðinn og bíll þeirra dregin úr festunni. Gekk verkefnið vel og gátu ferðamennirnir haldið ferð sinni áfram. Á vef björgunarsveitarinnar kemur fram að þessar aðstoðarbeiðnir þar sem farið er að aðstoða ferðamenn á bílaleigubílum sé bróðurparturinn af öllum útköllum sem þeir sinni og það sé komin tími til að endurskoða "Ísland allt árið" ef þetta á að vera svona til framtíðar.

Fleiri fréttir