Vængir Júpiters náðu ekki að rugga Stólunum
Tindastóll lék við Vængi Júpiters í Rimaskóla í 1. deild karla í körfubolta sl. föstudagskvöld. Ekki reyndust Vængirnir mikil fyrirstaða en Tindastóll lék vel allan leikinn og hafði betur í öllum leikfjórðungum með 11-15 stiga mun og enduðu á að sigra 63-115.
Stólarnir komust í 0-5 og lentu aldrei undir í leiknum. Þeir voru yfir 17-28 eftir fyrsta leikhluta og í hálfleik var staðan 30-56. Að loknum þriðja leikhluta var munurinn orðin 40 stig og staðan 47-87 og enn og aftur sigldu Stólarnir öruggum sigri í höfn.
Antoine Proctor var stigahæstur í liði Tindastóls með 33 stig og hann hirti 6 fráköst. Þá gerði Helgi Rafn 27 stig og tók 5 fráköst. Darrel Flake gerði 19 stig og tók 6 fráköst.
Á sama tíma tapaði Þór á Akureyri á Akureyri gegn Hreinsa Birgis og félögum í Hetti og hafa Stólarnir því loks náð alvöru forystu í slagnum í 1. deildinni. Á föstudag gefst möguleiki á að auka muninn en þá kemur lið Þórs í heimsókn í Síkið.
Stig Tindastóls: Proctor 33, Helgi Rafn 27, Flake 19, Pétur 12, Helgi Margeirs 10, Ingi Rafn 4, Ingimar 4, Páll 4 og Finnbogi 2.