Varaslökkviliðsstjórinn slökkti að sjálfsögðu í Haukunum

Það var bráðfjörugur en skrítinn leikur í Síkinu í kvöld þegar Tindastóll og Haukar mættust í 21. umferð Dominos-deildarinnar. Haukarnir berjast fyrir þriðja sætinu í deildinni en Stólarnir öruggir í öðru sæti en vildu alls ekki tapa öðrum leiknum í röð á heimavelli. Úr varð æsispennandi leikur sem lauk á því að Svabbi Birgis setti niður þrist þegar fimm sekúndur voru eftir og tryggði heimamönnum sigur, 89-86.

Byrjunarlið Tindastóls var skipað Lewis, Dempsey, Helga Viggós, Sigurði Páli og Ingva. Leikurinn hófst á þeim ósköpum að Helgi Viggós setti niður þrist en síðan keyrðu bæði lið upp hraðann en réðu eiginlega ekkert við hann. Mikil barátta var strax frá byrjun en mönnum voru ansi mislagðar hendur í sókninni. Emil Barja setti niður þrist fyrir Hauka og kom þeim í 7-14 þegar fimm mínútur voru liðnar en næstu sjö mínútur gerðu Haukar aðeins eitt stig. Á þessum kafla hófu Stólarnir að brjóta linnulítið á hinum fyrnasterka Alex Francis sem var mjög miður sín á vítalínunni og setti aðeins niður eitt víti í tólf tilraunum! Sá galli var hins vegar á gjöf Njarðar að sterkustu varnarmenn Stólanna söfnuðu villum eins og enginn væri morgundagurinn. Stólarnir snéru leiknum við á þessum kafla og komust í 22-15 og síðan setti Helgi Margeirs niður tvö þrista af Halamiðum með skömmu millibili og Svabbi bætti einum við og staðan 33-23. Tindastólsmenn höfðu níu stiga forystu í hálfleik, 42-33, sem var mesta furða því nokkrir máttarstólpar liðsins var alls ekki að spila vel í sókninni.

Þessi munur hélst fram í miðjan þriðja leikhluta en þá steig hinn ungi og bráðefnilegi Kári Jónsson upp hjá Haukum, reif sína menn í gang og gerði sjálfur 12 stig í leikhlutanum. Nú voru Tindastólsmenn líka komnir í bullandi villuvandræði og Flake, Helgi Viggós og Dempsey gátu lítið beitt sér í varnarleiknum. Kári minnkaði muninn í eitt stig þegar tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum en Flake sá til þess að Stólarnir voru þremur stigum yfir, 64-61, fyrir lokaátökin.

Tindastólsmenn reyndu að spila agaðri leik í fjórða leikhluta en fljótlega voru bæði Flake og Dempsey komnir með fimm villur hvor og komu því ekki meira við sögu frekar en Siggi sem meiddist rétt fyrir hálfleik. Lewis kom Stólunum í 77-70 en Kristinn Marinósson setti niður tvo þrista fyrir Hauka, munurinn orðinn eitt stig og skömmu síðar fékk Helgi Viggós sína fimmtu villu. Haukarnir höfðu fengið afar fáar villur dæmdar á sig í leiknun en nú fóru Stólarnir loks að draga villur á þá og skiluðu vítunum niður. Gestirnir svöruðu jafnóðum fyrir sig og þegar tvær mínútur voru eftir kom Haukur Óskarsson Haukum yfir, 83-84. Pétur svaraði að bragði fyrir Stólana. Haukur klikkaði síðan á skoti og Svabbi tók frákastið og fékk vítaskot. Hann setti aðeins annað niður og Emil Barja jafnaði 86-86 þegar 24 sekúndur voru eftir. Pétur fór upp með boltann og stillti upp í rólegheitum, dró til sín varnarmenn Hauka og sendi þá boltann á Svabba. Hann var galopinn og setti skot niður úr 3ja stiga landi þegar tæpar 5 sekúndur voru eftir og allt ætlaði vitlaust að verða í Síkinu. Haukar tóku leikhlé og gátu tekið boltann inn á miðjum vallarhelmingi Tindastóls þegar leikurinn hófst að nýju, en þeir voru of lengi að finna mann í opnu færi og leiktíminn rann út. Lokatölur 89-86 og stuðningsmenn Tindastóls kófsveittir en kampakátir fögnuðu sínum mönnum vel og lengi.

Haukarnir spiluðu lengstum góða vörn á Lewis og Dempsey sem áttu erfitt uppdráttar í sóknarleiknum. Bekkurinn kom hins vegar stekur inn í kvöld og gerði 40 stig. Lewis var atkvæðamestur með 15 stig, níu fráköst og sex stoðsendingar. Helgi Margeirs var með 14 stig og þar af fjóra þrista í fimm tilraunum. Helgi Viggós var öflugur og þá sérstaklega í fyrri hálfleik, hann var með 13 stig líkt og Dempsey og átti í miklu stríði við Francis allan tímann. Þá endaði Svabbi með 12 stig og fjögur fráköst og að sjálfsögðu sigurkörfuna og virtist ekki leiðast það mikið!

Síðasta umferðin í Dominos-deildinni verður næsta fimmtudag en þá fara Tindastólsmenn í Borgarnes og leika við lið Skallagríms sem er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni.

Stig Tindastóls: Lewis 15, Helgi Margeirs 14, Helgi Viggós 13, Dempsey 13, Svabbi 12, Flake 9, Pétur 6, Ingvi 5 og Sigurður Páll 2.

Stig Hauka: Kári Jónsson 23, Alex Francis 21, Haukur Óskarsson 17, Emil Barja 13, Kristinn Marinósson 11 og Kristinn Jónsson 1.

Fleiri fréttir