Varmahlíðarskóli Heilsueflandi grunnskóli

Varmahlíðarskóli í Skagafirði er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli. Á skólaárinu 2013 -2014 verður unnið sérstaklega með þáttinn geðrækt. Oft er bent á að það þurfi að rækta líkamann til þess að viðhalda heilbrigði en ekki er síður mikilvægt að rækta geðheilsuna.

Dæmi um þætti sem einkenna góða geðheilsu er jákvætt viðhorf og vellíðan, sjálfsvirðing, bjartsýni og tilfinning fyrir því að hafa stjórn á lífi sínu og sjá hlutina í samhengi, og að hver einstaklingur fái að njóta sín sem best.

Í nýrri Aðalnámsskrá er unnið með 6 grunnþætti og er heilbrigði og velferð einn þeirra. Þar eru meðal annars lagt til grundvallar jákvæð sjálfsmynd, andleg vellíðan, góð samskipti, og skilningur á eigin tilfinningum og annarra. Marka á stefnu um geðrækt í skólanum til að efla alhliða vellíðan, öryggiskennd og árangur allra.

Fleiri fréttir