Vatnsnesvegur ber ekki þá umferð sem um hann er

Mikil umferð hefur verið í sumar um veg númer 711, hringveg um Vatnsnes  í Húnaþingi vestra. Telur ferðaþjónustubóndi á svæðinu að umferð þar geti verið um 80-100 þúsund bílar yfir sumarið. Vegurinn er að stórum hluta malarvegur og þykir barns síns tíma miðað við þá umferð sem nú er.

Í fréttaskýringu um málið, í nýjasta tölublaði Feykis, er fjallað um ástand vegarins og rætt við þau Guðnýju Hrund Karlsdóttur, sveitarstjóra Húnaþings vestra, Knút Óskarsson A. Óskarsson, ferðaþjónustubónda á Ósum og Gunnar Helgason svæðisstjóra hjá Vegagerðinni.

 

Fleiri fréttir