Vegslóðinn að Hvítserk lokaður

Vegslóðanum niður að Hvítserk við Húnaflóa hefur verið lokað en samkvæmt Rúv.is hafa erlendir ferðamenn lent í vandræðum þar vegna hálku undanfarið. 

Björgunarsveitin Húnar var kölluð út sl. föstudag þegar hollenskir ferðamenn höfðu lent í vandræðum með að komast aftur upp á þjóðveginn eftir að hafa ekið niður að Hvítserk. Kvöldið áður höfðu aðrir ferðalangar velt bílaleigubíl sínum á veginum sem var ein glæra.

Meðan björgunarsveitarmenn aðstoðuðu Hollendingana komu menn frá bílaleigunni að sækja bílinn sem oltið hafði kvöldið áður og lentu þeir í vandræðum með að komast aftur upp á þjóðveginn.

Þetta ekki í fyrsta sinn sem aðstoða hefur þurft ferðamenn á þessum slóðum í vetur, samkvæmt heimildum Rúv, en vegaslóðinn niður að Hvítserk er ekki á forræði Vegagerðarinnar og þar eru engar merkingar eða neitt slíkt. Bóndinn á Ósum hefur nú lokað veginum í varúðarskyni þar til hlánar.

Fleiri ferðamenn á vetur

Að sögn Kristins Karlssonar, formanni ferðamálafélags Vestur-Húnavatnssýslu, eru vandræðin við Hvítserk til marks um að bregðast þurfi betur við auknum fjölda ferðamanna. Þeir eru oft á illa útbúnum bílum og upplýsingagjöfin mætti vera meiri. „Núna bara í vetur þá höfum við séð meira af túristum á ferðinni,“ segir Kristinn í samtali við Ríkisútvarpið. „Fólk er að koma þegar það er snjór og hálka og þá erum við kannski ekki alveg í stakk búin með merkingar og skilti sem vara fólk við að fara ekki of langt.“

Fleiri fréttir