Veita leyfi fyrir efnistöku úr landi Ytri-Kárastaða

Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur veitt Vegagerðinni framkvæmdaleyfi til efnistöku úr námu í landi Ytri-Kárastaða á Vatnsnesi en umrædd náma er skilgreind í gildandi aðalskipulagi Húnaþings vestra 2002-2014.

Tillagan var borin upp á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra í síðustu viku og samþykkt með sjö atkvæðum.

Fleiri fréttir