Verðlaunahönnunarkeppni um kennimerki (lógó)

Samstarfshópur um „Gæði úr Húnaþingi“ undir forystu Spes sveitarmarkaðar í Húnaþingi vestra stendur fyrir opinni hönnunarsamkeppni um kennimerki (lógó) og lýsir hér með eftir tillögum.

Kennimerkið skal vera einkennandi fyrir framleiðslu sem unnin er að mestu leiti í höndunum og byggir að nokkru leiti á hráefni svæðisins. Hér er aðallega átt við handverk, hönnun og matvælaframleiðslu. Einnig koma þjónustustaðir í ferðaþjónustu að verkefninu.

Tilgangur með kennimerkinu er að veita viðskiptavinum vísbendingar um uppruna vöru og framleiðsluhætti. Merkið á að nota á vöru, umbúðir, matseðla, bréfsefni, verðmiða o.fl.  Að baki kennimerkis liggja gæðaviðmið sem hver og einn notandi kennimerkis viðurkennir.

Húnaþing vestra (íbúar eru 1187) er vel þekkt sem handverkshérað. Fjölbreytt gæðahandverk er í boði á fimm stöðum: Grúsku á Borðeyri, Verslunarminjasafninu Bardúsa á Hvammstanga, Handverkshúsinu Langafit á Laugarbakka, Spes sveitarmarkaði á Laugarbakka og í  Leirhúsi Grétu á Litla Ósa. Einnig eru handverksvörur úr Húnaþingi vestra að finna í völdum búðum á Akureyri, í Reykjavík og í Leifsstöðinni í Keflavík, svo að dæmi séu tekin. Brauð, kjötvörur, landnámshænuegg og ostar eru í boði á netinu og/eða í sérverslunum í Reykjavík. Merking þessara afurða með upprunamerki er um leið kynning héraðsins út á við.

Kennimerkið „Gæði úr Húnaþingi – local quality“ á að endurspegla handverk og matvæli, fegurð og ró, einkenni héraðsins svo sem Hvítserk, seli, ferskir vindar, heiðalönd, vatnsföll o.fl.

Á Facebook síðu Gæði úr Húnaþingi er að finna myndir frá Húnaþingi vestra og upplýsingar. Einnig er bent á www.northwest.is til upplýsingaöflunar. Hugmyndum að kennimerki verður ekki endilega að skila full frágengnum.

Öllum áhugasömum er frjálst að taka þátt í samkeppninni. Tillögur skal senda til Spes sveitarmarkaðar, Syðri Jaðri, 500 Staður, undir dulnefni, og nafn hönnuðar skal fylgja með í lokuðu umslagi. Tillögur á tölvutæku formi skulu vera á JPG, TIF, BMP eða PDF formi og vistaðar á geisladisk.  Tillögur þurfa að hafa borist fyrir 15. mars 2012. Vinsamlegast merkið umslagið með „Gæði lógó“.

Allur tillögurnar verða sýndar opinberlega á viðeigandi stað og sýningin auglýst. Íbúar Húnaþings vestra munu velja verðlaunamerkið úr innsendum tillögum. Verðlaunamerkið (lógóið) verður alfarið eign samstarfsaðilinna  að samkeppni lokinni og geta þeir  því  nýtt sér merkið eða breytt eftir þörfum. Dómnefndin áskilur sér þann rétt að hafna öllum tillögum ef svo ber undir.

Þrenn verðlaun eru í boði. Sú tillaga sem valin verður hlýtur kr. 150.000 í verðlaunafé, næst vinsælasta tillaga hlýtur 90.000 kr. en sú þriðja 40.000 kr.

Frekari upplýsingar veitir Gudrun Kloes hjá SSNV atvinnuþróun, gudrun@ssnv.is, s. 455 2515 eða 898 5154.

 

Um Húnaþing vestra:

Sveitarfélagið Húnaþing vestra (Vestur-Húnavatnssýsla og Bæjarhreppur) nær frá Holtavörðuheiði í vestri til Gljúfurár í austri, en teygist frá Vatnsnesi í norðri suður á Arnarvatnsheiði. Íbúar eru 1187 (2012).

Minnsti þéttbýlisstaður Íslands, Laugarbakki, er í sveitarfélaginu, en þar búa um 45 manns. Íbúar á Hvammstanga, sem er þjónustukjarni sveitarfélagsins, eru 550 (2012).

Margvíslega þjónustu er að finna í sveitarfélaginu. Mikil gróska er í handverksframleiðslu. Fimm handverkshús bjóða upp á úrvalsvörur – á Borðeyri er Grúska, á Hvammstanga er Verslunarminjasafn Bardúsa, á Laugarbakka er Handverkshúsið Langafit, en þar er einnig rekinn sveitarmarkaðurinn Spes með sérvalið handverk og mat úr héraði. Síðast en ekki síst er leirhús Grétu á Litla Ósi með gallerí.

Handverk úr Húnaþingi vestra er víðar í boði og má þar nefna Leifsstöð í Keflavík og valdar búðir í Reykjavík og á Akureyri.

Nokkrir bændur eru aðilar í „Beint frá býli“ og selja sínar vörur í gegnum netið og einnig í völdum sérverslunum í Reykjavík.

Þessir aðilar og reyndar fleiri hafa tekið höndum saman og huga að sérmerkingu sinnar framleiðslu undir heitinu „Gæði úr Húnaþingi – local quality“. Sveitarfélagið styður þetta framtak.

Hér á þessari síðu er að finna myndefni úr Húnaþingi vestra, auglýsing um opna hönnunarsamkeppni um kennimerki („lógó“) fyrir framtakið, og tengla.

Tenglar:

www.northwest.is
www.nordanatt.is

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir