Verið velkomin á Sturluhátíð 12. júlí í Tjarnarlundi
Hin árlega Sturluhátíð, kennd við sagnaritarann mikla, Sturlu Þórðarson, verður haldin annars vegar á Staðarhóli og hins vegar í félagsheimilinu Tjarnarlundi, Saurbæ í Dölum, laugardaginn 12. júlí nk. Hátíðin hefst kl 14 á Staðarhóli, þar sem stóð bær Sturlu Þórðarsonar. Sturlunefndin hefur haft forgöngu um að setja þar upp söguskilti og hafa þau að geyma margvíslegan fróðleik sem í senn tengist sögu staðarins en umfram allt auðvitað Sturlungu.
Að þessu sinni munum við afhjúpa síðasta skiltið sem nefndin hefur haft forgöngu um að láta gera. Gengið verður um Staðarhólinn ásamt fróðu fólki um söguna, og litast um nágrennið frá sjónarhóli sagnaritarans mikla.
Dagskráin í félagsheimilinu Tjarnarlundi
Að því búnu verður haldið að félagsheimilinu Tjarnarlundi, sem er í næsta nágrenni og þar hefst hin hefðbundna dagskrá kl. 15, svo sem hér segir:
Guðni Th. Jóhannesson, prófessor og fyrrverandi forseti Íslands.
Satt og logið í sögunni. Nokkur orð um sannleiksgildi bókmennta og fræða frá sjónarhóli sagnfræðings sem vill ekki skálda.
Elín Bára Magnúsdóttir, sjálfstætt starfandi fræðimaður.
Sturla sem höfundur Íslendingasagna. Stílmælingar á Íslendinga sögu og útvöldum Íslendingasögum.
Einar Kárason rithöfundur les valda búta úr verkum Sturlu.
„Með orðum sjálfs meistarans“ Tónlistaratriði á þjóðlegum nótum.
Jóhanna Þórhallsdóttir söngkona flytur við píanóundirleik Arnhildar Valgarðsdóttur.
Aðgangur er ókeypis eins og jafnan áður. Við látum liggja frammi lista ef einhverjir vilja skrá sig í félagið okkar. Árgjaldi ætíð í miklu hófi stillt Þá bjóðum við upp á kaffiveitingar að vanda.
Dagskrá fyrir börnin
Að þessu sinni bjóðum við upp á nýmæli. Samhliða Sturluhátínni bjóða starfsmenn Eiríksstaða upp á forna leiki og þrautir úti við í Tjarnarlundi. Þau Hafdís og Máni, eru bæði leiðsögumenn á Eiríkisstöðum og fróð um allt sem viðkemur landsnámsöldinni á Íslandi. Þau ætla að halda utan um dagskrá fyrir börn á meðan foreldrar og/eða aðrir aðstandendur hlýða á dagskrána inni við í Tjarnarlundi.
Það er ánægjulegt að geta frá því greint að mjög góð þátttak hefur ætíð verið á þessum hátíðum, sem sýnir að viðfangsefnið er ljóslifandi í hugum ótrúlega margra. Við höfum lagt áherslu á að dagskráin höfði til almennings og fengið til liðs við okkur frábæra fræðimenn og fólk sem kynnt hefur sér þetta ótrúlega tímabil í sögu lands og þjóðar.
Og sem endranær segjum við einfaldlega:
Verið velkomin á Sturluhátíðina 12. júlí næst komandi.
Einar K Guðfinnsson, formaður Sturlunefndarinnar