Viðburðaríkt á vígaslóð
Það var kátt á hjalla á Syðstu-Grund og víðar í Blönduhlíðinni þegar hátíðin Listaflóð á vígaslóð var haldin um síðustu helgi. Frændurnir Sveinn Arnar Sæmundsson og Árni Geir Sigurðsson hófu hátíðina með hádegistónleikum í Miklabæjarkirkju á föstudaginn.
Um kvöldið var svo fjölmenn kvöldvaka í kakalaskála þar sem draugasögur voru meginþemað í dagskránni en einnig voru fjölmörg tónlistaratriði og sérvitringurinn Sölmundur mætti á svæðið. Á laugardaginn gafst svo kostur á að ganga frá Syðstu-Grund að Haugsnesi með leiðsögn Sigurðar Hansen og voru margir sem nýttu sér það. Loks var fjölskylduskemmtun „Sunnan við garðinn hennar mömmu,“ en þar ríkti mikil stemming. Sölutjöld voru á staðnum, farið í leiki og hlustað á tónlistaratriði.
Það er Grundarhópurinn sem stendur að hátíðinni og nýtur m.a. styrks frá Menningarráði Norðurlands vestra.
Meðfylgjandi myndir tók blaðamaður Feykis í gönguferðinni á slóðir Haugsnesbardaga og heima á Syðstu-Grund á laugardeginum.
.